ÞINN EIGIN JARVIS

Hugmyndin þín er100 spjöll í burtu.

Kannski færri. Byrjaðu að spjalla.

Fjögur skrefUm hálftímaEngin tækniþekking

ÞINN EIGIN JARVIS

Hugmyndin þín er100 spjöllí burtu.

Kannski færri. Byrjaðu að spjalla.

1spjöll við Jarvis

Fjögur skrefUm hálftímaEngin tækniþekking

Þau sem eru komin með hann.

Jarvis í notkun síðan í janúar 2026. Óbreytt skilaboð, birt með leyfi.

Lau. 14. feb. 2026
þetta cowork er svo galið 😆er að gera þátt, coworker að hjálpa mér
Þ
Þórarinn HjartarsonEin Pæling
Fim. 26. mars 2026
þessi claude er í RUGLINUég er ÓSTÖÐVANDI með cloude og shit hvað ég vorkenni nýútskrifðum forriturum 😆
V
Vilhelm EinarssonWilsons Pizza & Minigarðurinn
Mið. 20. maí 2026
Þetta er svo sturlaðog virkar að sjálfsögðu 😄
G
Gunnar Björn ÞórhallssonTengir & Netkerfi og Tölvur
Fös. 24. júlí 2026
Heyrðu, þetta AI dæmi sem þú sýndir mér er algjör snilld. Þetta er alveg rosalegt, sko. Ég trúi þessu varla, hvað þetta getur. Heimurinn er gjörbreyttur.Þú gjörbreyttir lífinu mínu.Ég þarf ekki að snerta lyklaborðið mitt einu sinni enn í lífinu mínu.
J
JóhannOrkusokkar & Kókó netverslun

Hvað er Jarvis

Aðstoðarmaður sem gleymir þér ekki.

Claude er gervigreind frá Anthropic. Jarvis er Claude með minni: hann man þig, möppurnar þínar og verkefnin þín. Ég hef sett hann upp fyrir fullt af fólki og viðbrögðin hér að ofan eru ástæðan fyrir þessari síðu.

Man

Jarvis man verkefnin þín, fólkið þitt og hvar þið skilduð við síðast. Þú byrjar aldrei aftur á núlli.

Vinnur

Les skjölin þín, skrifar drög, skipuleggur vikuna og heldur utan um möppurnar þínar. Alvöru vinna, ekki bara spjall.

Þinn

Kerfið býr á þinni tölvu og þróast með þér. Þetta er ekki áskrift hjá mér, þú átt þetta.

Hreinskilni: Til að nota Jarvis þarftu Claude áskrift frá Anthropic, um 2.500 kr á mánuði. Hún er keypt beint af þeim og fer ekki til mín. Leiðarvísirinn sýnir þér nákvæmlega hvernig það er gert.

Fáðu Jarvis

Þú ræður hvað þetta kostar.

Allir fá sama aðgang. Þau sem borga meira niðurgreiða aðganginn fyrir hin.

01Veldu upphæð
02Borgaðu á síðunni
03Kóðinn kemur strax

Eingreiðsla með VSK, engin áskrift hjá mér.
Claude áskriftin, um 2.500 kr á mánuði, er keypt beint af Anthropic.

2.900kr
Algengasta bilið.
100 kr10.000100.000 kr

Kort · Apple Pay

Eitthvað hikstaði, prófaðu aftur.

Aðgangur

Sláðu inn kóðann.

Kóðinn þinn opnar leiðarvísinn og svæðið þar sem þú getur spurt mig beint.

Þessi kóði fannst ekki. Athugaðu stafsetninguna og reyndu aftur.

Spurt og svarað

Það sem fólk spyr um.

Ég kann ekkert á tölvur. Er þetta samt fyrir mig?
Já. Leiðarvísirinn byrjar á byrjuninni og gerir ráð fyrir engri kunnáttu. Hjálp fylgir hverju skrefi og þú getur alltaf spurt mig.
Af hverju má ég ráða verðinu?
Markmiðið er að koma Jarvis á sem flesta, ekki að hámarka verð. Allir fá það sama. Upphæðin er endanleg og með VSK.
Kostar eitthvað á mánuði?
Já, Claude áskriftin, um 2.500 kr á mánuði. Hún er keypt beint af Anthropic og fer ekki til mín. Ekkert annað.
Virkar þetta á Mac og Windows?
Já, bæði. Þú velur Mac eða Windows efst í leiðarvísinum og skrefin fylgja því.
Ég á fyrirtæki, seturðu svona upp fyrir okkur?
Já, það er sérstök þjónusta. Fljótlegasta leiðin er að næla sér í kóða á hvaða upphæð sem er, hoppa inn og senda mér spurningu þar. Ég svara samdægurs og við tökum það þaðan.
Hvað ef ég festist einhvers staðar?
Inni í leiðarvísinum er Spurðu Björn hnappur. Þú spyrð, ég svara, og ef þú leyfir þá nýtist svarið öllum hinum. Enginn er skilinn eftir í miðri uppsetningu.